Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Vestfjörðum / Vatnsdalsvatn í Vatnsfirði
  • Vatnsdalsvatn í Vatnsfirði

    Bleikjuvatn með laxavon

  • Vatnsdalsvatn í Vatnsfirði

    Bleikjuvatn með laxavon

  • Vatnsdalsvatn í Vatnsfirði

    Bleikjuvatn með laxavon

Vatnsdalsvatn í Vatnsfirði

Vatnsdalsvatn er í Vatnsfirði á Barðaströnd og er um 2,2 km2 að flatarmáli, 8 m. yfir sjávarmáli og er mesta dýpi um 30 m. Vatnið er um 2,6 km. að lengd og um 1 km. þar sem það er breiðast. Mjög aðdjúpt er vestan megin við Vatnsdalsvatn en aðgrynnra að austan.
Talað er um að þetta svæði sé með þeim fallegri á Íslandi.

Vatnsdalsvatn er í um 340 km fjarlægð frá Reykjavík ef farið er um Hvalfjarðargöngin og um 55 km frá Patreksfirði. Hægt er að stytta leiðina frá Reykjavík með því að taka ferjuna Baldur frá Stykkishólmi til Brjánslækjar, sem er í um 8 km. fjarlægð frá Vatnsdal.

Veiði er heimil í öllu vatninu, nema við ósa efri Vatnsdalsár og við útfall vatnsins, þessir staðir eru greinilega merktir.
Mest er af bleikju í vatninu, sjóbleikju og einstaka lax ár hvert. Mest veiðist af 1-3 punda fiski og á hverju sumri veiðist einnig töluvert af vænni bleikju, allt að 6,5 pundum.
Daglegur veiðitími er frá kl 7:00 til kl 22:00 út tímabilið sem spannar frá 1. júní til 30. september ár hvert, en besti veiðitíminn er frá seinnipart júní fram í miðjan ágúst.
Leyfilegt agn er fluga, maðkur, og spónn.

Algengustu veiðistaðirnir við Vatnsdalsvatn eru við Undir Kálfahjalla á Viteyri, sem er fyrir miðju vatninu vestan megin og Kofanesi, sem er fremst í vatninu. Um 30 mín. gangur er að Lambagilseyrum, austanvert við vatnið. Við strandlengjuna á þessari gönguleið eru fjölmargir veiðistaðir. Ekki er leyfilegt að veiða í ám, sem tengjast vatninu. Mörk vatnsins og ánna eru sérstaklega merkt.

Hótel Flókalundur eru í 2 km fjarlægð frá vatninu, en þar eru einnig góð tjaldstæði og Brjánslæk (8 km.). Auk þess er bændagisting í Rauðsdal (16 km.) og Birkimel (24 km.).
Frábærar gönguleiðir eru í nágrenni Vatnsdalsvatns. Nefna má gönguleiðir á Lónfell, þaðan sem Hrafna-Flóki gaf landinu nafnið Ísland og til Flókatófta, sem eru spölkorn frá ferjubryggjunni á Brjánslæk. Einnig er nokkuð auðveld ganga að Helluvatni, sem er ofan Hótelsins í Flókalundi. Jafnframt tengist Vatnsfjörðurinn Gísla sögu Súrsonar og er svokallaður Gíslahellir austanvert í firðinum. Þá má nefna Surtarbrandsgil, sem er einstætt vegna steingervinga sinna.
Korthöfum er skylt að skrá sig hjá veiðiverði eða í bensínafgreiðslu á Hótel Flókalundi, þar sem kortanúmer og kennitala eru skráð niður. Vatnsfjörður er friðland og eru veiðimenn beðnir um að skilja ekki eftir sig neinar leifar eða ummerki. Stranglega er bannað að aka utan vega. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.
Veiðivörður/tengiliður á staðnum: Veiðivörður. s: 456-2044, en einnig eru veittar upplýsingar í bensínafgreiðslu á Hótel Flókalundi.

Vatnsdalsvatn – Vinsælar flugur:

x

Check Also

Selá í Steingrímsfirði

Selá í Steingrímsfirði er í Strandasýslu á mörkum Hrófbergshrepps og Kaldrananesshrepps í um 275 km fjarlægð frá Reykjavík og einungis í um 15 km fjarlægð ...