Heim / Laxveiði / Laxveiði á Suðurlandi / Þverá í Fljótshlíð
  • Þverá í Fljótshlíð

    Fjögurra stanga laxveiðiá sem rennur í Eystri Rangá

Þverá í Fljótshlíð

Þverá í Fljótshlíð - Veiðistaðavefurinn

Þverá í Fljótshlíð er um 26 km löng 4 stanga lindá með dragáreinkenni sem á upptök sín í Fljótshlíð, en hana mynda margar smáár sem allar eiga upptök sín ofan Fljótshlíðar.
Hún er fremur lítil og nett til að byrja með en vex eftir því sem hliðarár falla í hana og er orðin um 4 m3/sek við ós Eystri Rangár.

Veiðisvæði Þverár er um 20 km langt og hefur verið þokkalega góð laxveiði í henni með yfirleitt um 100 ~ 200 laxa veidda á ári hverju.
Veiðinni hefur verið haldið uppi með sleppingum um 20 þúsund laxagönguseiða á ári sem hefur verið sleppt 4 sleppitjarnir vítt og breitt um ána.

Leyfðar eru 4 stangir í Þverá í Fljótshlíð út tímabilið sem nær frá 1. júlí til 27. október, og heimilt að veiða á flugu og maðk, en spónn er ekki leyfður.

Ágætt veiðihús fylgir seldum veiðileyfum sem staðsett er á Breiðabólsstað, en það er með svefnpláss fyrir 10 manns.

 

Þverá í Fljótshlíð – veðrið á svæðinu

x

Check Also

Sog – Alviðra

Sogið er 19 kílómetra löng lindá sem fellur úr Þingvallavatni. Það er vatnsmesta lindá landsins með meðalrennsli upp á 110 m³/s. Mikil lax- og silungagengd ...