Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Þorgeirsvatn – Skagaheiði

Þorgeirsvatn – Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Þorgeirsvatn er á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Þorgeirsvatn er töluvert sunnar en vatnið Þrístikla og er í landi Vikurs. Þetta vatn er um 0,3 km2 að flatarmáli og í því er bæði bleikja og urriði.
Hinsvegar er þetta vatn ekki mikið stundað sökum þess hversu langt er að fara í það, en einungis er hægt að komast þangað á 2 jafnfljótum.
Hægt er að ganga að vatninu frá t.d. Selvatni nyrðra, eða frá Þrístiklu.

Veiðileyfi og upplýsingar má fá á bænum Vikur í síma 453 6614.

Upphafsmynd fengin úr bæklingnum “Veiði á Skagaheiði”

Þorgeirsvatn – veðrið á svæðinu

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...