Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Skjaldbreiðarvatn – Skagaheiði

Skjaldbreiðarvatn – Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Skjaldbreiðarvatn er á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Skjaldbreiðarvatn liggur aðeins norðan við Langavatn sem tilheyrir Steinnýjarstöðum.
Vatnið er fremur lítið, eða um 0,3 km2 að flatarmáli. Að vatninu er enginn vegur og er því nauðsynlegt að ganga að vatninu frá Langavatni.

Í vatninu er vænn urriði og bleikja í nokkru magni.

Upphafsmynd fengin úr bæklingnum „Veiði á Skagaheiði“

Upplýsingar um veiðileyfi og veiði í vatninu er hægt að fá á bæjunum Hlíð og Örlygsstöðum.

Skjaldbreiðarvatn – vinsælar flugur:

x

Check Also

Hrolleifsdalsá

Hrolleifsdalsá er í Hrolleifsdal sem liggur til suðausturs inn í Tröllaskagafjallgarðinn upp frá Sléttuhlíð við austanverðan Skagafjörð. Dalurinn er sagður kenndur við Hrolleif landnámsmann. Áin ...