Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Selvatn Eystra – Skagaheiði

Selvatn Eystra – Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Selvatn Eystra er á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Selvatn er á austanverðri Skagaheiði við hlið Rangatjarna og Skálavatns á svokölluðu Mallands- og Ketuvatnasvæði. Þetta er 0,3 km2 stórt vatn sem heldur bæði urriða og bleikju. Mest er um 1 ~ 2 punda fiska, en þó hefur heyrst að fiskurinn fari stækkandi, en vatnið var áður fyrr ofsetið. Það hefur lagast mikið eftir að bændur lögðu net til að grisja vatnið.

Að vatninu liggur 7 km jeppaslóði frá Syðra-Mallandi og Ketu.

Veiðileyfi selur Ásgrímur Ásgrímsson á Mallandi, en hann selur veiðileyfi í fleiri vötn, s.s. Skjaldbreiðarvatn, Urriðavatn, Selvatn, Heytjörn, og Rangatjarnir.
Einnig eru seld veiðileyfi frá bænum Ketu eins og fyrr segir og hægt að nálgast upplýsingar hjá Hrefnu í síma 453 6523.
Þau geta einnig gefið upplýsingar um gistingu í nágrenninu.

Upphafsmynd fengin úr bæklingnum “Veiði á Skagaheiði”

Selvatn Eystra – vinsælar flugur:

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...