Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Reyðartjörn Skagaheiði

Reyðartjörn Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Reyðartjörn er á Skagaheiði sem er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Suður af Selvatni liggur 0.3 km2 vatn sem oft er kallað Fossvatn, en heitir í raun Reyðartjörn. Vatnið er í landi Hóls, en jörðin Hóll er komin í eyði.

Í Reyðartjörn er mikið af fiski, og eingöngu bleikju sem getur orðið gríðarvæn. Stangveiðar eru ekki mikið stundaðar í vatninu sökum erfiðra aðstæðna. Hinsvegar má fá veiðileyfi frá landeiganda.

Aðkoma að vatninu er um 8 km jeppaslóða frá Hóli, og heyrst hefur að ganga þurfi töluverðan spöl frá jeppaslóðanum að vatninu.
Upplýsingar um veiði og veiðileyfi er hægt að fá hjá landeiganda, Önnu Jónsdóttur.

Reyðartjörn – vinsælar flugur:

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...