Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Ólafsfjarðará í Ólafsfirði

Ólafsfjarðará í Ólafsfirði

Ólafsfjarðará - Veiðistaðavefurinn

Ólafsfjarðará rennur í Ólafsfjarðarvatn, sem er stórt sjávarlón í botni Ólafsfjarðar, í um 440 km fjarlægð frá Reykjavík, en í um 60 km fjarlægð frá Akureyri.
Þetta er dragá sem á upptök sín á austanverðri Lágheiði og í fjalllendinu beggja vegna dalsins sem er nokkuð vatnsmikil, að mestu lygn, þó hún sé fremur straumhörð ofarlega.
Áin á það til að litast í miklum rigningum, en hreinsar sig mjög fljótt aftur og er því yfirleitt mjög tær.

Sjóbleikja gengur í Ólafsfjarðará seinnipart sumars, yfirleitt eins til tveggja punda fiskar, og er oft ágætis veiði í ánni.
Árleg veiði í ánni er um 1600 fiskar.

Leyfilegt er að veiða með maðk og flugu í ánni út tímabilið sem nær frá 15. júlí til 30. september.
Áin er veidd með 4 dagsstöngum sem skiptast á 2 svæði árinnar sem er með 20 skráða veiðistaði. Þó er heimilt að bæta við þriðju stöng á svæði séu báðar stangir svæðisins keyptar, og er þriðja stöngin þá ætluð ungviðnum, 12 ára og yngri.
Dagskvóti á stöng eru 12 fiskar, en enginn kvóti er á þriðju aukastönginni. Þó er heimilt að taka af kvóta hinna stanganna.

Aðgengið er allgott um mest alla á þó vissulega þurfi einstöku sinnum að ganga að veiðistöðum.

Athugið að ekkert veiðihús er við ánna en gistimöguleikar eru ýmsir í nágrenninu.

Upphafsmynd: Ólafsfjarðará, Ljósm.: Elli stangveiðinörd – http://elliveidir.blogspot.is/

Ólafsfjarðará – veðrið á staðnum

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...