Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Nesvötn – Skagaheiði

Nesvötn – Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Nesvötn er á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Nesvötn eru við hlið Laxárvatns á norð-vestanverðri Skagatánni, um 0,3 km2 að flatarmáli og í um 70 m yfir sjávarmáli.
Bæði bleikja og urriði eru í vötnunum sem eru 2. Vestara vatnið er miklu minna en það austara, eða einungis um 0.08 m2 að flatarmáli.

Enginn vegur liggur að vötnunum og er einfaldast að fara á 2 jafnfljótum frá Laxárvatni.
Frekari upplýsingar um veiði í vötnunum má fá hjá Sigurlaugu Kristjánsdóttur á bænum Tjörn í síma 452-2874

Upphafsmynd fengin úr bæklingnum “Veiði á Skagaheiði”

Nesvötn – vinsælar flugur:

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...