Heim / Laxveiði / Laxveiði á Norðurlandi / Laxá í Nesjum – Skagaheiði

Laxá í Nesjum – Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Laxá í Nesjum er á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Laxá í Nesjum er lítil og nett á sem á upptök sín ofan Laxárvatns á Skagaheiði á norð-vestanverðri Skagatánni og rennur hún til sjávar skammt norðan við bæinn Saurar.  Þetta er ekki mikið vatnfall og getur því þornað töluvert upp á þurrkasumrum. Hinsvegar ef gott vatn er í ánni hefur nokkuð af laxi gengi í hana.

Ekki hefur verið selt veiðileyfi í ánna, en bændur hafa sjálfir nýtt veiðiréttinn.

Hægt er að grennslast um veiði og möguleg leyfi í Laxá í Nesjum hjá Baldvini Sveinssyni á bænum Tjörn í síma 452-4560.

Laxá í Nesjum – veðrið á svæðinu

x

Check Also

Blanda 1 neðsta svæði Blöndu

Blanda 1 er neðsta svæði Blöndu, sem er jökulá í Austur-Húnavatnssýslu á Norðvesturlandi og rennur í gegnum Blönduós, í um 240 km fjarlægð frá Reykjavík. ...