Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Kelduvíkurvatn – Skagaheiði
  • Kelduvíkurvatn á Skaga

    Eitt af mörgum veiðivötnum fyrir landi Hrauns

  • Kelduvíkurvatn á Skaga

    Eitt af mörgum veiðivötnum fyrir landi Hrauns

  • Kelduvíkurvatn á Skaga

    Eitt af mörgum veiðivötnum fyrir landi Hrauns

  • Kelduvíkurvatn á Skaga

    Eitt af mörgum veiðivötnum fyrir landi Hrauns

Kelduvíkurvatn – Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en…

Umsögn Veiðistaðavefsins

Verð veiðileyfa
Aðkoma að vatninu
Umhverfi
Almenn ánægja

Mjög gott

Umsögn : Umsögn : Hér gefur að líta stjörnugjöf Veiðistaðavefsins. Þessi stigagjöf hefur EKKI áhrif á heildarstigagjöf notenda sem gefur að líta fyrir aftan nafn veiðisvæðis. Þetta mat er sjálfstætt og er eingöngu mat aðstandenda Veiðistaðavefsins.

.

Kelduvíkurvatn er á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Kelduvíkurvatn er í nágrenni bæjarins Hrauns, en þar eru seld veiðileyfi í vatnið. Vatnið er þó í eigu Þangskála. Þetta er 0,3 km2 vatn og er örstutt í það frá þjóðveginum.
Í vatninu er bleikja sem er 1-2 pund að stærð, en einnig urriði sem er allvænn og hafa heyrst sögur af ekki minni urriða en 3 pund og allt að 5-6 pund.

Veiðiréttur í vatninu er hjá 2 jörðum, en bærin Hraun sér um sölu veiðileyfa fyrir báðar jarðir. Skiptist því vatnið til helminga frá læknum sem er fyrir miðju vatni. Norðan megin í vatninu er fyrir landi Hrauns.

Verð veiðileyfa er tiltölulega hátt þar sem einungis er selt í hálft vatn í senn, og þarf að borga tvöfalt ef veiða á í öllu vatninu. Hinsvegar fylgja þá helmingi fleiri vötn, svo það er bara plús.

Sterkar flugur hér eru til að mynda Gray Ghost og litlar svartar pöddur eins og Langskeggur.
Reynst hefur vel að fara ekki langt út í og henda með með bakkanum en þar er einskonar malarkantur og virðist sem fiskurinn vilji mikið hanga þar frekar en úti í vatninu.

Hægt er að panta gistingu í litlu veiðihúsi sem er í Skammargili sem er á milli Kolluvatns og Kelduvíkurvatns.
Veiðileyfið í Kelduvíkurvatn nær einnig yfir veiðar í Nesvatn, Nesá, Hörtnárvatn, og Hörtná.
Veiðileyfi og upplýsingar er hægt að nálgast á bænum Hraun.

Upphafsmynd fengin úr bæklingnum “Veiði á Skagaheiði”

Kelduvíkurvatn – vinsælar flugur:

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...