Heim / Laxveiði / Laxveiði á Suðurlandi / Hvítá – Brúnastaðir

Hvítá – Brúnastaðir

Hvítá í Árnessýslu er jökulá sem á upptök sín í Hvítárvatni, skammt fyrir ofan Bláfell, undir Langjökli. Hvítá er þriðja lengsta á landsins, ef lengd Ölfusár er lögð við hana samtals 185 km. Meðalrennsli Hvítár við Gullfoss, einn frægasta foss landsins, er 100 m³/s. en í flóðum getur vatnsmagnið allt að tuttugufaldast. Við Öndverðarnes rennur áin saman við Sogið og myndar Ölfusá. Brýr eru á Hvítá við Brúarhlöð, Laugarás og norðan Bláfells á Kili.

Á söndunum fyrir austan Bláfell fellur Jökulfall (Jökulkvísl) í Hvítá, en það á upptök undir Hofsjökli og í Kerlingarfjöllum. Áður en Hvítá steypist fram af hálendisbrúninni í Gullfoss, bætast enn nokkrar ár í Hvítá, bæði að austan og utan.

Hvítá er með marga góða laxveiðistaði, og oft eru kvíslar og ósar þar sem þverár sameinast Hvítá fullar af laxi.

Seld eru veiðileyfi í Hvítá fyrir landi Brúnastaða.

x

Check Also

Sog – Alviðra

Sogið er 19 kílómetra löng lindá sem fellur úr Þingvallavatni. Það er vatnsmesta lindá landsins með meðalrennsli upp á 110 m³/s. Mikil lax- og silungagengd ...