Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Hálendi / Hraunvatn – Skagaheiði

Hraunvatn – Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Hraunvatn er á Skagaheiði sem er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Hraunvatn liggur nokkuð vestar en Selvatn og Reyðartjörn, er um 0.60 km2 að flatarmáli og liggur í um 190 metrum yfir sjávarmáli.
Hrauná fellur úr Hraunvatni í Selvatn.

Í vatninu er bæði urriði og bleikja, en heyrst hefur að bleikjan í Hraunvatni taki ekki vel agn manna þó hún veiðist ágætlega í net.
Aðkoman er eftir afar slæmum jeppaslóða frá Selvatni.
Veiðiréttur og veiðileyfasala er í höndum forsvarsmanna nærliggjandi sveitarfélaga en að stærstum hluta er þetta vatn í Skagafjarðarsýslu, en einnig í Austur-Húnavatnssýslu.

Hraunvatn Skagaheiði – vinsælar flugur:

x

Check Also

Veiðitjörn Arnarvatnsheiði - Veiðistaðavefurinn

Veiðitjörn – Arnavatnsheiði

Veiðitjörn hefur oft verið sagður einn fallegasti veiðistaður á Arnavatnsheiði, en þetta er tiltölulega lítið, 0.30 km2 vatn sem liggur norð-austan við Arnarvatn litla og ...