Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Hörtnárvatn – Skagaheiði

Hörtnárvatn – Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Hörtnárvatn er á skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Hörtnárvatn er í nágrenni bæjarins Hrauns, en þar eru seld veiðileyfi í vatnið. Vatnið er í eigu Kelduvíkur. Þetta er 0,4 km2 vatn og er örstutt í það frá þjóðveginum. Nesá fellur í Hörnárvatn úr Nesvatni, og er um að gera að reyna fyrir sér hér líka, enda bæði bleikja og urriði í ánni, sem og í Hörnárvatni sjálfu.

Hægt er að panta gistingu í litlu veiðihúsi sem er í Skammargili sem er á milli Kolluvatns og Kelduvíkurvatns.
Veiðileyfið í Hörnárvatn nær einnig yfir veiðar í Nesvatn, Nesá, Hörtnárvatn, Hörtná, og Kelduvíkurvatn.
Veiðileyfi og upplýsingar er hægt að nálgast á bænum Hraun.

Upphafsmynd fengin úr bæklingnum “Veiði á Skagaheiði”

Hörtnárvatn – vinsælar flugur:

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...