Heim / Laxveiði / Laxveiði á Suðurlandi / Hólsá – Borgarsvæði

Hólsá – Borgarsvæði

Hólsá – Borgarsvæði er þekkt veiðisvæði neðst í vatnakerfi Rangánna, og tekur við frá neðsta svæði Ytri Rangá og nær niður á veiðisvæði Hólsá – Vesturbakki.
Svæðið er í um 85 km fjarlægð frá Reykjavík, en ekið er niður Þykkvabæjarveg áður en komið er inn á Hellu.

Svæðið hefur hingað til verið veitt með 4 stöngum, en með breytingum er það nú veitt með 2 stöngum, og er verðum á leyfum stillt í hóf.
Ekkert veiðihús fylgir svæðinu. Mikið framboð er af allskyns gistimöguleikum á svæðinu.
Hér er frábær veiðivon því allur lax sem gengur upp í Ytri og Eystri Rangár ganga hér í gegn.

Veiði undanfarin ár hefur verið 1000 – 1300 laxar á Borgarsvæðinu.

x

Check Also

Sog – Alviðra

Sogið er 19 kílómetra löng lindá sem fellur úr Þingvallavatni. Það er vatnsmesta lindá landsins með meðalrennsli upp á 110 m³/s. Mikil lax- og silungagengd ...