Heim / Sjóbirtingsveiði / Grímsá sjóbirtingsveiði
  • Grímsá - vorveiði

    Sjóbirtingsveiði í einni af fallegri ám landsins

  • Grímsá - vorveiði

    Sjóbirtingsveiði í einni af fallegri ám landsins

  • Grímsá - vorveiði

    Sjóbirtingsveiði í einni af fallegri ám landsins

  • Grímsá - vorveiði

    Sjóbirtingsveiði í einni af fallegri ám landsins

  • Grímsá - vorveiði

    Sjóbirtingsveiði í einni af fallegri ám landsins

  • Grímsá - vorveiði

    Sjóbirtingsveiði í einni af fallegri ám landsins

Grímsá sjóbirtingsveiði

Grímsá vorveiði - Veiðistaðavefurinn

Grímsá sjóbirtingsveiði er snemma vors í Grímsá í Lundareykjadal, um 70 km vestur af Reykjavík.

Ekinn er Vesturlandsvegur frá Reykjavík og rétt áður en komið er að Borgarfjarðarbrú er sveigt til hægri inn á þjóðveg númer 50. Er númer 50 ekinn þar til að komið er að vegamótum og er þá tekin vinstri beygja að Hvítárvöllum. Mjög fljótt eftir þessi gatnamót er vegarslóði til hægri sem liggur að veiðihúsinu. Hann er vel merktur og rekur sig yfir kjarri vaxið holt.

Grímsá í Lundareykjadal telst til bestu laxveiðiáa landsins. Áin á upptök í Reyðarvatni en í það falla smáár og lækir, að nokkru leyti uppsprettuvatn, sem gefa ánni nokkurn lindarársvip. Tunguá rennur í Grímsá við Veiðistað nr. 600, Oddstaðfljót.
Samanlagt vatnasvið ánna er 313 ferkílómetrar.

Grímsá sjóbirtingsveiði hefst 1. apríl og nær til 10. maí, og skal öllum fiski sleppt, hvort sem um sé að ræða sjóbirtingur eða lax.
Veitt er á 2 stangir í Grímsá á sjóbirtingstímanum.

Veiðisvæði er frá og með Hörgshyl að ofanverðu að og með Árbakkaklöpp að neðanverðu, og ekki er leyfð á eftirfarandi veiðistöðum: Móbergshyl, Svartastokki, Húsbreiðu, Stórlaxaflöt og Lambaklettsfljóti.

Myndir: Elías Pétur Viðfjörð Þórarinsson / Robert Nowak

Grímsá sjóbirtingsveiði – vinsælar flugur:

x

Check Also

Hæðargarðsvatn

Hæðargarðsvatn er lítið og fallegt vatn rétt við Kirkjubæjarklaustur og liggur vegurinn niður á Meðalland/Landbrot við hliðina á því. Vatnið er um 0.16km2 að stærð ...