Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Djúpavatn – Skagaheiði

Djúpavatn – Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Djúpavatn er á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Djúpavatn er um 0,3 km2 að flatarmáli, er rétt austan við Hraunsvatn og er eitt af mörgum veiðivötnum sem bærinn Hraun á Skaga selur veiðileyfi í. Enginn vegur er að vatninu en hægt er að ganga frá Kolluvatni, en þetta er ekki mjög langur gangur.
Utan Djúpavatn er einnig seld veiðileyfi í vötnin Aravatn, Kelduvíkurvatn, Hörtnárvatn, Ölvesvatn, Steinatjörn, Neðstavatn, og Djúpavatn, og Kolluvatn.

Öll þessi vötn eru á norð-austanverðum Skaga og eiga það sameiginlegt að vera fremur grunn.
Bæði bleikja og urriði eru í þessum vötnum, frá 1 til 2 pund að stærð, en þó er einungis bleikja í Djúpavatni.

Hægt er að leigja veiðihús sem liggur við Kolluvatn, og annað sem liggur á milli Kolluvatns og Kelduvíkurvatns fyrir vægt gjald.
Veiðileyfið gildir fyrir Kolluvatn, Hraunsvatn, Djúpavatn, Neðstavatn, og Steinatjarnir, og eru seld á bænum Hraun.
Leyfi í önnur vötn eru seld sérstaklega.

Djúpavatn – vinsælar flugur:

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...