Heim / Laxveiði / Laxveiði á Norðurlandi / Blanda 3 – veiði ofarlega í Langadal

Blanda 3 – veiði ofarlega í Langadal

Blanda 3

Blanda 3 er svæði í Blöndu sem er jökulá í Austur-Húnavatnssýslu á Norðvesturlandi og rennur í gegnum Blönduós, í um 240 km fjarlægð frá Reykjavík.

Hún á uppruna sinn í Hofsjökli en einnig renna í hana fjölmargar bergvatnsár af húnvetnsku heiðunum.

Áin er um 125 km að lengd, sem gerir hana að áttundu lengstu á landsins, og er vatnasviðið um 2300 ferkílómetrar.

Blanda rennur ofan af Eyvindarstaða- og Auðkúluheiði um 18 kílómetra langt gljúfur, Blöndugil, ofan í Blöndudal og síðan um Langadal og til sjávar í Húnafirði sem liggur inn af Húnaflóa.

Blanda hefur skipað sér öruggan sess sem ein af bestu laxveiðiám Íslands. Vandfundin er sú á sem gefur betri veiði í upphafi tímabils og er stórlaxastofninn i ánni sérlega öflugur.

Alltaf hefur mikill lax verið í henni en áður en hún var virkjuð var hún mjög gruggug svo að laxinn sá sjaldnast beituna og var húkk helsta veiðiaðferðin, en það er úr sögunni eftir að jökulaurinn hvarf.

Blöndu er skipt í fjögur veiðisvæði:

  • Svæði I er neðan Ennisflúða
  • Svæði II er frá Breiðavaðslæk að heimreið að Æsustöðum.
  • Svæði III nær frá Æsustöðum að útfalli Blönduvirkjunar
  • Svæði IV er fyrir framan Blönduvirkjun

Blanda 3 er ofarlega í Langadal, í um 280 km fjarlægð frá Reykjavík, og nær frá Svartabakka að vestan og upp að 50 metrum neðan Blönduvirkjunnar. Blanda 3 er um 20 km langt veiðisvæði.

Þegar líða fer á sumarið getur þetta svæði orðið ákaflega gjöfult og skemmtilegt veiðisvæði þar sem bæði er veitt í eyrarhyljum á sléttlendi og í ægifögrum gljúfrum að ofan. Þeir sem einu sinni hafa farið á þetta svæði verða yfirleitt heillaðir og koma aftur og aftur.

Blanda 3 er með þrjár stangir á dag út tímabilið sem nær frá 20. júní til 20. september ár hvert.
Leyfilegt er að veiða á flugu, maðk og spón á þessu svæði, en kvóti hefur verið ákveðinn 3 laxar á stöng á dag.

Nokkuð gott aðgengi er að flestum stöðum á þessu svæði, og hægt að keyra nánast að öllum hyljum. Hinsvegar er það ekki algilt, og þarf að nota 2 jafnfljóta á eitthvað af stöðum í gljúfrunum.

Með veiðileyfum fylgir gisting í glæsilegu veiðihúsi og er innifalinn morgunverður.
Vatnsstaða: Þegar líða tekur á sumarið er árviss viðburður að hækka tekur í Blöndulóni sem nær hámarki þegar vatnsborðið fer að flæða yfir stífluna við lónið. Er þá talað um að Blanda fari á yfirfall. Þegar Blanda fer á yfirfall hækkar yfirborð árinnar nokkuð og litast hún talsvert með þeim afleiðingum að áin verður erfiðari til veiða. Verð veiðileyfa í ágúst mánuði tekur mið af þeim möguleika að áin geti hugsanlega orðið illveiðanleg, enda ómögulegt að spá nokkuð fyrirfram um hvort eða hvenær áin fari á yfirfall. Lax-á getur því ekki borið ábyrgð sé áin á yfirfalli þegar veiðimenn eru við ánna. Á undanförnum árum hefur verið mjög misjafnt hvenær áin hefur litast, sumarið 2015 litaðist áin t.a.m. lítið sem ekkert og gerðu margir frábæra veiði það árið langt fram í september.
Blanda 3 er svæði í Blöndu sem er jökulá í Austur-Húnavatnssýslu á Norðvesturlandi og rennur í gegnum Blönduós, í um 240 km fjarlægð frá Reykjavík. Hún á uppruna sinn í Hofsjökli en einnig renna í hana fjölmargar bergvatnsár af húnvetnsku heiðunum. Áin er um 125 km að lengd, sem gerir hana að áttundu lengstu á landsins, og er vatnasviðið um 2300 ferkílómetrar. Blanda rennur ofan af Eyvindarstaða- og Auðkúluheiði um 18 kílómetra langt gljúfur, Blöndugil, ofan í Blöndudal og síðan um Langadal og til sjávar í Húnafirði sem liggur inn af Húnaflóa. Blanda hefur skipað sér öruggan sess sem ein…

Umsögn Veiðistaðavefsins

Verð veiðileyfa
Aðkoma að veiðistöðum
Umhverfi
Almenn ánægja

Gott

Umsögn : Hér gefur að líta stjörnugjöf Veiðistaðavefsins. Þessi stigagjöf hefur EKKI áhrif á heildarstigagjöf notenda sem gefur að líta fyrir aftan nafn veiðisvæðis. Þetta mat er sjálfstætt og er eingöngu mat aðstandenda Veiðistaðavefsins.

Blanda 3 – skemmtilegar myndir

Vinsælar flugur:

x

Check Also

Blanda 1 neðsta svæði Blöndu

Blanda 1 er neðsta svæði Blöndu, sem er jökulá í Austur-Húnavatnssýslu á Norðvesturlandi og rennur í gegnum Blönduós, í um 240 km fjarlægð frá Reykjavík. ...