Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Ásbúðnavatn – Skagaheiði

Ásbúðnavatn – Skagaheiði

Skagaheiði - Veiðistaðavefurinn

Ásbúðnavatn er á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, yfirleitt undir tvö hundruð metrum. Stórar klettaborgir breiða víða úr sér og í lægðum á milli þeirra eru veiðivötnin sem vart eiga sinn líka hér á landi.

Vegalengd frá Reykjavík er um 340 km +/- eftir því í hvaða vatn skal haldið.

Malarvegur er frá Skagaströnd og fyrir Skaga. Hann tengir saman bæi sem allflestir eru við ströndina. Upp að veiðivötnum liggja víða jeppaslóðar. Örfáir þeirra eru vel færir, jafnvel fyrir fólksbíla, en um aðra þarf að aka á fjórhjóladrifsbílum og svo eru sumir ekkert annað en troðningar sem auðveldlega geta spillst í rigningartíð.
Vart þarf að geta þess að allur akstur utan vega er með lögum óheimill á Skagaheiði eins og annars staðar í landinu.

Athugið að áður en farið er til veiða þarf að kaupa veiðileyfi hjá viðkomandi bónda/veiðiréttarhafa. Einnig þegar veiðivatnið er í afréttarlöndum.

Ásbúðnavatn er á norð-austanverðu horni Skagatáar, grunnt vatn um 0,5 km2 að flatarmáli. Vatnið er við hlið sjávar í einungis um 1-2 m yfir sjávarmáli, og við hliðina á bænum Ásbúðum.

Áður fyrr var mikið af bleikju í þessu vatni, en það heyrir söguni til og er ekki mikil veiði þarna lengur. Því eru ekki seld veiðileyfi lengur í vatnið.

Upplýsingar er hinsvegar hægt að nálgast á bænum Ásbúðum.

Ásbúðnavatn – veðrið á svæðinu

x

Check Also

Vesturhópsvatn

Vesturhópsvatn er staðsett  í Þverárhreppi í V.-Húnaþingi í um 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Vatnið er um 10.3 km2 at stærð og í um 19 ...