Heim / Silungsveiði / Silungsveiði á Norðurlandi / Arnarvatn á Melrakkasléttu
  • Arnarvatn á Melrakkasléttu

    Skemmtileg urriða- og bleikjuveiði á norðausturlandi

Arnarvatn á Melrakkasléttu

Arnarvatn er eitt þriggja vatna  innan Veiðikortsins á Melrakkasléttu. Hin vötnin eru Hraunhafnarvatn, og Æðarvatn.
Þessi vötn eru í Norðurþingi á Melrakkasléttu, og er Arnarvatn ferkar smátt og grunnt, eða 1 km² að stærð. Mesta dýpt er um 3 m.

Fjarlægð er um 610 km. frá Reykjavík sé farið um Hólaheiði og 5-10 km. frá Raufarhöfn. Fyrir þá sem ætla í Arnarvatn þá er töluverð ganga þangað eða um 500 m. frá nyrðri enda Æðarvatns þar sem er ágætt að leggja bílum.

Veiði er heimil í landi Skinnalóns og má sjá merkingu á korti hvar má veiða. Í Arnarvatni er best að veiða á töngum, sem skaga út í vatnið á nokkrum stöðum.

Mikill fiskur er í vatninu, ½ ~ 3 punda bleikju sem er að finna um allt vatn, og 1-4 punda urriða.

Leyfilegt er að veiða með maðki, flugu, og spón í Arnarvatni.

Leyfilegt er að tjalda á eigin ábyrgð á gömlu túni við vatnið, en stutt er í mjög gott skipulagt tjaldstæði á Raufarhöfn. Einnig er hægt að athuga með gistingu á Hótel Norðurljósum eða á Gistihúsinu Hreiðrið www.nesthouse.is, sem er staðsett á Raufarhöfn.
Handhöfum Veiðikortsins ber að vera með kortið og skilríki á sér og tilbúnir að sýna það veiðiverði þegar hann vitjar veiðimanna. Það er stranglega bannað að skilja eftir sig rusl og aka utan vega. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Óskað er eftir að því að menn sendi upplýsingar um afla með tölvupósti á netfangið veidikortid@veidikortid.is.
Veiðivörður / umsjónarmaður á staðnum: Halldór Þórólfsson S: 863-8468.

Arnarvatn – vinsælar flugur:

 

x

Check Also

Langavatn – Skagaheiði

Langavatn er á Skagaheiði, en Skagaheiði er stórkostlegt land sem fáir þekkja, þar er töfrandi fegurð og heillandi möguleikar til útivistar. Landslagið er tiltölulega lágt, ...